Ferill 733. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1096  —  733. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um raunfærnimat.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Hvert er hlutverk ráðuneytisins og stofnana þess er varðar raunfærnimat?
     2.      Hverjar eru skyldur framhaldsskóla til að leiðbeina fólki sem lokið hefur raunfærnimati um leiðir til að bæta við sig námi til að öðlast starfsréttindi hér á landi?
     3.      Hverjar eru skyldur framhaldsskóla til að bjóða upp á námskeið eða námsleiðir sem fólk sem lokið hefur raunfærnimati kann að vanta til að öðlast starfsréttindi hér á landi?


Munnlegt svar óskast.